Þjónustumerki

 

 

 

 Slysahjálp - E01.11

Merki þetta er notað til að gefa til kynna stað þar sem slysahjálp er veitt.
 
   Heilsugæsla - E01.12
Merki þetta er notað til að vísa á heilsugæslustöð sem aðeins er opin hluta sólarhrings á virkum dögum, sbr. reglug. 348/1998.
 

 

 Lögregla - E01.21

Merki þetta er notað til að vísa á lögreglustöð.
 

 

 Lyfjaverslun - E01.31

Merki þetta er notað til að vísa á lyfjaverslun.

   Neyðarskýli - E01.41
Merki þetta vísar á neyðarskýli. Notkun skýlisins er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
 
   Neyðarsími eða talstöð - E01.51
Merki þetta vísar á neyðarsíma eða neyðartalstöð. Notkun símans eða talstöðvarinnar er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
 
   Slökkvitæki - E01.61
Merki þetta vísar á slökkvitæki. Notkun tækisins er ekki leyfileg nema í neyðartilvikum.
 
   Upplýsingar - E02.11
Merki þetta er notað til að vísa á stað þar sem ferðamönnum eru veittar upplýsingar með upplýsingatöflum e.þ.h.
 
   Upplýsingaskrifstofa - E02.12
Merki þetta er notað til að vísa á stað þar sem ferðamönnum eru veittar upplýsingar á skrifstofu.
 
   Almenningssími - E02.21
Merki þetta vísar á almenningssíma þar sem aðstæður gera slíkt æskilegt, t.d. í strjálbýli.
 
   Almenningssalerni - E02.31
Merki þetta vísar á stað þar sem er almenningssalerni.
 
   Þurrsalerni (kamar) - E02.32
Merki þetta vísar á stað þar sem er þurrsalerni eða kamar fyrir ferða­fólk.
 
   Losun skolptanka - E02.35
Merki þetta vísar á stað þar sem hægt er að losa skolptanka bifreiða og hjólhýsa, sbr. reglug. 348/1998.
 
   Miðbær - E02.41
Merki þetta vísar á miðbæjarsvæði.
 
   Iðnaðaðsvæði - E02.45
Merki þetta vísar á iðnaðarsvæði, sbr. reglug. 427/2000.
 
   
 
 
   Athyglisverður staður - E02.61
Merki þetta er notað þar sem ástæða þykir til að benda vegfarend­um á athyglisverða staði, aðra en þá sem eru merktir með sérstöku tákni.
 
   Gönguleið - E02.62
Merki þetta vísar á upphaf gönguleiðar.
 
   Áningarstaður - E02.63
Merki þetta vísar á stærri áningarstað þar sem eru bifreiðastæði, borð og bekkir.
 
   Útsýni - E02.64
Merki þetta vísar á stað þaðan sem útsýni er gott.
 
   Útsýni með hringsjá - E02.65
Merki þetta vísar á stað þar sem er hringsjá og gott útsýni.
 
   
 
   Sorpílát - E02.71
Merki þetta vísar á stað þar sem eru sorpílát.
 
   Sorpgámar - E02.72
Merki þetta vísar á stað þar sem eru sorpílát.
 
   Útvarp - E02.81
Merki þetta er sett upp þar sem ökumenn ættu að skipta um bylgju­lengd á FM-útvarpsviðtæki.
 
   Bensínstöð - E03.11
Merki þetta vísar á afgreiðslustað eldsneytis.
 
   Bifreiðaverkstæði - E03.21
Merki þetta vísar á bifreiðaverkstæði.
 
   Hjólbarðaverkstæði - E03.31
Merki þetta vísar á stað þar sem gert er við hjólbarða.
 
   Bílaleiga - E03.41
Merki þetta vísar á bílaleigu.
 
   Veitingastofa - E04.11
Merki þetta vísar á veitingastofu þar sem ekki eru framreiddir heitir réttir.
 
   Veitingahús - E04.21
Merki þetta vísar á veitingahús þar sem framreiddir eru heitir réttir.
 
  Heimilisveitingar - E04.31
Merki þetta vísar á stað þar sem matur er seldur á heimili.
 
   Hótel, gistiheimili - E05.11
Merki þetta vísar á gististað þar sem boðið er upp á uppbúin rúm í herbergjum.
 
   Svefnpokapláss - E05.12
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á gistingu í svefnpoka­plássi.
 
   Farfuglaheimili - E05.31
Merki þetta vísar á gististað sem rekinn er af félögum Farfugla.
 
   Sumarhús til leigu - E05.41
Merki þetta vísar á sumarhús til leigu.
 
   Sæluhús - E05.51
Merki þetta vísar á sæluhús ferðafélaga þar sem að öllu jöfnu er krafist greiðslu fyrir notkun.
 
   Tjaldsvæði - E05.61
Merki þetta er notað við viðurkennd tjaldsvæði.
 
   Hjólhýsasvæði - E05.62
Merki þetta er notað við viðurkennd hjólhýsasvæði.
 
   Eldunaraðstaða - E06.11
Merki þetta vísar á stað þar sem eldunaraðstaða fylgir gistirými.
 
   Sturta - E06.21
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur komist í sturtu.
 
   Heitur pottur - E06.31
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur komist í heitan pott.
 
   Þvottavél - E06.41
Merki þetta vísar á stað þar sem ferðafólk getur fengið að þvo fatnað í þvottavél.
 
   Fundaaðstaða - E06.51
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á fundaaðstöðu, sbr. reglug. 348/1998.
 
   

 
   Sundstaður - E07.11
Merki þetta vísar á sundstað. Geta má þess hvenær opið er, á upplýsingatöflu, sbr. reglug. 348/1998.
 
   Íþróttahús - E07.12
Merki þetta vísar á íþróttahús.
 
   Íþróttavöllur - E07.13
Merki þetta vísar á íþróttavöll.
 
   Hestaleiga - E07.21
Merki þetta vísar á stað þar sem hestar eru boðnir til leigu.
 
   

 
   Veiðileyfi - E07.31
Merki þetta vísar á stað þar sem seld eru veiðileyfi.
 
   Sjóstangaveiði - E07.32
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á bátsferðir til sjóstangaveiði.
 
   Hvalaskoðun - E07.35
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á bátsferðir til hvalaskoðunar, sbr. reglug. 427/2000.
 
   Skíðalyfta, togbraut - E07.41
Merki þetta vísar á skíðasvæði þar sem er togbraut.
 
   Skíðalyfta með stólum - E07.42
Merki þetta vísar á skíðasvæði þar sem er stólalyfta.
 
   Skíðagöngusvæði - E07.43
Merki þetta vísar á skíðagöngusvæði þar sem brautir eru troðnar eða stikaðar.
 
   Snjóbílaferðir - E07.47
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á ferðir með beltabifreið, sbr. reglug. 427/2000.
 
   Golfvöllur - E07.51
Merki þetta vísar á golfvöll.
 
   

 
   Vélsleðar til leigu - E07.61
Merki þetta vísar á stað þar sem vélsleðar eru til leigu.
 
   Vatnaþotur til leigu - E07.62
Merki þetta vísar á stað þar sem vatnaþotur eru til leigu.
 
   Reiðhjól til leigu - E07.63
Merki þetta vísar á stað þar sem reiðhjól eru til leigu.
 
   Bátar til leigu - E07.64
Merki þetta vísar á stað þar sem bátar eru til leigu.
 
   

 
  Sjóskíði - E07.71
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á sjóskíðaiðkun.
 
   Gúmmíbátaferðir - E07.72
Merki þetta vísar á stað þar sem boðið er upp á ferðir með gúmmíbát niður á, sbr. reglug. 427/2000.
 
   Kirkja - E08.11
Merki þetta vísar á kirkju.
 
   Kirkjugarður - E08.12
Merki þetta vísar á kirkjugarð.
 
   Banki - E08.21
Merki þetta vísar á banka.
 
   Hraðbanki - E08.22
Merki þetta vísar á hraðbanka, sbr. reglug. 348/1998.
 
   Pósthús - E08.31
Merki þetta vísar á pósthús.
 
   Ferðamannaverslun - E08.41
Merki þetta vísar á verslun þar sem boðið er upp á matvörur og aðrar ferðavörur.
 
   Kjörbúð - E08.42
Merki þetta vísar á verslun þar sem boðið er upp á matvörur og aðrar ferðavörur.
 
   Bakarí - E08.43
Merki þetta vísar á bakarí.
 
   Söluskáli - E08.44
Merki þetta vísar á söluskála þar sem boðið er upp á sælgæti, gos­drykki og annað þess háttar.
 
   Handverk - E08.45
Merki þetta vísar á stað þar sem handverk er til sölu, sbr reglug. 348/1998.
 
   Gróðurhús - E08.46
Merki þetta vísar á gróðurhús þar sem afurðir eru til sölu, sbr. reglug. 348/1998.
 
   Listasafn - E08.51
Merki þetta vísar á listasafn.
 
   Bókasafn - E08.52
Merki þetta vísar á bókasafn.
 
   Sædýrasafn - E08.53
Merki þetta vísar á sædýrasafn.
 
   Húsdýragarður - E08.57
Merki þetta vísar á stað þar sem húsdýr eru til sýnis.
 
   

 
   Hundahótel - E08.61
Merki þetta vísar á stað þar sem hundar eru teknir í gæslu, sbr. reglug. 348/1998.
 
   Dýralæknir - E08.65
Merki þetta vísar á dýraspítala eða stofu dýralæknis, sbr. reglug. 427/2000.
 
   
 
   Bílferja - E09.11
Merki þetta vísar á bílferju. Þar sem ástæða þykir til að taka fram brottfarartíma, skal það gert með upplýsingatöflu.
 
   Bátsferðir - E09.12
Merki þetta vísar á stað þar sem eru bátar sem veita ferðamönnum þjónustu.
 
   Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.21
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu til hægri.
 
  Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.22
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu til vinstri.
 
  Flugvöllur fyrir áætlunarflug - E09.23
Merki þetta vísar á leið að flugvelli, í stefnu beint áfram.
 
   Flugbraut - E09.31
Merki þetta vísar á flugbraut fyrir smærri flugvélar.