Fagmennska - nærgætni - gleði.

Undirmerki

Undirmerki eru notuð þar sem leggja þarf sérstaka áherslu á notkun umferðarmerkis eða að leggja áherslu á sérstaklega varasamar aðstæður framundan. Tökum sem dæmi þá er sett undirmerki sem gefur til kynna hvað langt er í gatnamót.
Undirmerki eru þessvegna mikilvæg þau vara okkur við og leiðbeina líka.
 
Fjarlægð að hættu eða stað sem bann eða leiðbeining varðar - J01.11

Bann eða leiðbeining gildir handan merkisins - J01.51
 
Bann eða leiðbeining gildir að merkinu - J01.52
 
Bann eða leiðbeining gildir beggja vegna við merkið - J01.61
 
Fjarlægð að upphafi hættusvæðis eða bannsvæðis og að lokum þess - J02.11
 
Lengd bannsvæðis til vinstri - J03.11
 
Lengd bannsvæðis til hægri - J03.12
 
Lengd bannsvæðis, báðar áttir - J04.11
 
Gildistími banns - J06.11
 
Gildistími leyfis - J07.11
 
Bifreiðastæði, samsíða akbraut - J08.11
Merki þetta er notað með merkinu D01.11

Bifreiðastæði, hornrétt á akbraut - J08.21
Merki þetta er notað með merkinu D01.11

Bifreiðastæði, skástæði - J08.31
Merki þetta er notað með merkinu D01.11

Leiðbeinandi hámarkshraði - J09.xx
Merki þetta er notað með nokkrum viðvörunarmerkjum (A) og sýnir þann hámarksökuhraða sem er ráðlagður á þeim vegarkafla sem við­vörun nær yfir. Það þýðir að þú ert kannski á 90 km götu en samt er ráðlegt að fara ekki hraðar en 50. Oftast sett þar sem vegsýn er stutt og hættulegar beygjur framundan. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreindan hraða. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið J09.50

Fjarlægð að stað sem leiðbeining varðar - J10.11
 
Bifreiðastæði fyrir fatlaða - J11.11
Merki þetta er notað með merkinu D01.11

Vísun til staðar til hægri - J12.11 
 
Vísun til staðar til vinstri - J12.12
 
Vísun til staðar áfram og til hægri - J12.21
 
Vísun til staðar áfram og til vinstri - J12.22
 
Vísun til staðar áfram - J12.31 Auðveldlega hægt að rugla þessu merki við akreinamerki  . athugið lögunina.
 
Leið aðalbrautar á vegamótum - J14.11
Merki þetta er notað þegar aðalbraut liggur um vegamót á annan hátt en beint áfram. Breiða línar er forgangurinn í gegnum gatnamótin en mjórri línurnar eiga að veita forgang á aðalbraut.

Leið aðalbrautar á vegamótum - J14.32
Merki þetta er notað þegar aðalbraut liggur um vegamót á annan hátt en beint áfram.

Leið aðalbrautar á vegamótum - J14.51
Merki þetta er notað þegar aðalbraut liggur um vegamót á annan hátt en beint áfram.

Umferð sjónskertra - J15. 11
 
Umferð heyrnarskertra - J15.21
 
Takmörkuð heildarþyngd sem sagt bíllinn og allt það sem hann má bera fólk og varning. - J16.xx
 
Brotlegir verða fjarlægðir - J20.11
 
Nýlögð klæðing - J27.31
 
Óbrúaðarðar ár - J31.11
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem ekið er inn á leið með óbrúuðum ám.

Seinfarinn vegur - J32.11
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem ekið er inn á leið sem er fær góðum fólksbifreiðum en mjög seinfarin. Leiðin getur verið gróf og brött en vötn eru lítil.

Illfær vegur - J32.21
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem ekið er inn á leið sem er fær torfærubifreiðum (jeppum), þ.e. bifreiðum sem eru hærri en fólksbifreiðir almennt og með fjórhjóladrifi. Ár eru með sæmilegum vöðum en á leiðinni geta verið blautir eða grýttir kaflar og klungur.

Torleiði - J32.31
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem ekið er inn á leið sem er aðeins fær sérútbúnum torfærubifreiðum (jeppum og fjallabílum). Á leiðinni geta verið mjög brattar brekkur, snjóskaflar eða ár sem tæplega eru færar bifreiðum.

Blindhæð - J33.11
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem hæð framundan takmark­ar mjög vegsýn.

Blindhæðir - J33.21
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem hæðir framundan tak­marki mjög vegsýn.

Slysasvæði - J34.11
Merki þetta er notað með viðvörunarmerki til að vara við svæði þar sem slys eru óvenju tíð.

Einbreitt slitlag - J39.11
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem bundið slitlag er 5 m breitt eða mjórra til að vara ökumenn við að þeir þurfi að víkja út á malaröxl þegar mæst er. Slitlag og bundið slitlag er malbik eða steypa. Óbundið slitlag eru malarvegir.

Malbik endar - J40.11
Malbik endar - J40.11 Merki þetta er notað með A99.11 til að vara við stað þar malbik endar og malarvegur tekur við.

Einbreið brú - J41.11
Merki þetta er notað með viðvörunarmerki til að vara við einbreiðri brú. Hér gildir reglan að sá sem kemur fyrstu að einbreiðri brú á forganginn.

Einbreið göng - J41.51
Merki þetta er notað með viðvörunarmerki til að vara við einbreiðum jarðgöngum.

Stöðvunarskylda framundan - J42.11

Merki þetta er notað með A06.11 til að vara við að framundan sé stöðvunarskylda við vegamót, B 19.11.

Einbreið brú með þröngri akbraut - J43.xx
Merki þetta er notað með viðvörunarmerki til að vara við einbreiðri brú og akbraut sem er mjórri en 3,05 m. Tveir síðustu stafir í númeri tákna breidd akbrautar í metrum með einum aukastaf. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið J41.28.

Götuhlaup - J50.11
Merki þetta er notað með A99.11 við leið þar sem skipulagt götu­hlaup fer fram.

<>

 Öll merki sem halla eitthvað eins og eftirfarandi merki gera þá átt þú að vera þeim megin við merkið sem lægra er. Það segir að ef merkið hallar frá hægri til vinstri skallt þú vera vinstrameginn við merkið.

Vegstika vinstri - K01.11
Vegstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Við vinstri brún akbrautar með umferð í eina átt skal einnig nota eitt merki, jafn stórt og merki á hægri brún og við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Í tvíbreiðum jarðgöngum við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli og við vinstri brún akbrautar er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.

Vegstika hægri - K01.12
Vegstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Við vinstri brún akbrautar með umferð í eina átt skal einnig nota eitt merki, (til dæmis tvöfaldri Reykjanesbraut). jafn stórt og merki á hægri brún og við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Í tvíbreiðum jarðgöngum við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli og við vinstri brún akbrautar er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.

Snjóstika vinstri - K01.21
Snjóstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún á snjóþungum vegum. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli. Við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö, með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.

Snjóstika hægri - K01.22

Gátskjöldur í vegkanti, vinstri - K12.11
Síma- og rafmagnsstaura og aðra slíka hluti við veg sem þrengja akbraut eða valdið geta vegfarendum hættu má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi

Gátskjöldur í vegkanti, hægri - K12.12
Síma- og rafmagnsstaura og aðra slíka hluti við veg sem þrengja akbraut eða valdið geta vegfarendum hættu má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi

Gátskjöldur í jarðgöngum, vinstri - K13.11
Svart- og hvítröndótta vegskildi má nota til að afmarka akbraut í jarðgöngum. Rendur skulu halla að akbraut.

Gátskjöldur í jarðgöngum, hægri - K13.12
Svart- og hvítröndótta vegskildi má nota til að afmarka akbraut í jarðgöngum. Rendur skulu halla að akbraut.

Gátskjöldur á brú, vinstri - K14.11
Brúarenda má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.

Gátskjöldur á brú, hægri - K14.12
Brúarenda má merkja með skjöldum með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.

Gátskjöldur á veggreiningu - K15.11
Þar sem vegur greinist frá öðrum vegi má setja merki með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.

Gátskjöldur á veggreiningu - K15.21
Þar sem vegur greinist frá öðrum vegi má setja merki með svörtum og gulum skástrikum sem vísa að vegi.

Gátstaur - K17.11
Þar sem alda hefur verið sett á akbraut til að draga úr hraða umferðar má setja upp staur með svörtum og gulum röndum beggja vegna akbrautar til frekari viðvörunar.

Stefnuör - K20.11
Þegar stefna vegar breytist og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum ská­strikum sem mynda örvar í akstursstefnu.

Þverslá - K20.21
Þegar vegur endar og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum skástrikum sem mynda örvar í akstursstefnu.
Þverslá - K20.31

Þegar vegur endar og aðstæður bera það ekki greinilega með sér má setja við vegarbrún merki með svörtum og gulum skástrikum sem mynda örvar í akstursstefnu.

Gátskjöldur vegna framkvæmda, Eru hvítir og rauðir vinstri - K30.11
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.

Gátskjöldur vegna framkvæmda, hægri - K30.12
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.

Þverslá vegna framkvæmda - K31.11
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.

Þverslá vegna framkvæmda - K32.11
Nota má merkingar í rauðum og hvítum litum þegar sérstök ástæða þykir til, svo sem vegna framkvæmda á eða við veg.

Knúið áfram af 123.is